Teenage Wasteland
»Bloggararnir
28.05.2008 17:05:43 / eydís

flööö

hahaaa langt síðan ég hef bloggað ;D vííj Lils er að koma heim eftir fjóra daga! ég bara get ekki beeeeðið =D ég og skúli erum að fara í kebló að sækja hana á sunnudaginn!! =D
annars er ekki mikið að frétta af mér svosem.. ég er búin í skólanum ;P náði öllu nema ógeðis íslenskunni ;) oog ég er byrjuð að vinna aftur í mjólkurbúinu, seem er ágætt þannig séð, kannski aaaðeins of mikið af útlendingum sem geta bara tjáð sig á sínu máli sem fer alveg hræðilega í taugarnar á mér! En það reddast. Ég er semsagt í skyr- og jógúrtpökkun aftur og ég kann þetta flest allt ennþá ;D gaman af því.
Ég fór á lokaballið og það var freeekar leim, mjög lítið af fólki og ég ekki alveg nógu ölvuð til að dansa af mér rassgatið. En jújú það var ágætt inná milli. hmm jáá ég fór í smá eurovision chill hjá Jóhannesi og Lólu á seinasta laugardag, það var helvíti gaman bara :P fórum svo á selfoss og það var allt dautt í hvíta húsinu og sumir voru ekki með aldur til að fara á 800 barinn. þar á meðal ég. :$ þannig að við fórum bara aftur á eyrabakka =D jájá.
Hmm hef voða lítið annað að segja ;D nema það að Guðni er fluttur heimtil mín :D það er heví næs :haha:
En jám ég ætla ekki að hafa þetta lengra í dag ;P blee.


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 19:03:24 / ajlilz

Já hæ!

Ég er komin aftur. Til þess að láta vita af mér og mínum seinustu dögum/vikum.


-  Það er komið sumar. 20-30 stiga hiti á hverjum degi. Allt grænt og frááábært, vor hér = 
   besta sumar á Íslandi.
-  Melodi festivalen búið í skólanum mínum. Vorum 1 viku að æfa og semja lag. Fluttum á 
   mánudeginu eftir og gekk það vel fyrir alla nema mig.
-  Idol audition. Ég og Lilli komumst ekki áfram en vorum mjög ánægðar með allt saman.
   Líka alveg sjúkt gaman þarna.
-  Picnic & PA algjörlega í tísku þessa dagana. Stalkers. Mackaronies&Cheese <3
-  Sandra hjarta PA.  luuullz
-  Ég keypti pils. Svart með grænbláum slaufum og hvítum&bleikum&grænbláum doppum
   Það er flottast í heimi og það er EKKI artí!
-  Ég hélt ég hefði meira að segja.

Eníveis.. Hér koma nokkrar myndir úr skólanum:


Fyrir utan skólann. Sjúkt heitt!


Ég&Sísí myndumst líka svona vel.


Picnic.. Já það var gaman. Fólk horfði ekkert lítið á 4 stelpur sem sátu að fika við eina stæðstu bílagötu Uppsala XD


Nilla <3


Lilli =)


Og Sandra elskan mín :*


sætir rassar..


Ég er rosa aktív í leikfimi! og líka rosa aktív í að myndast vel.


og svo að lokum sæti bekkurinn minn.


- Lils Pils!


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 09:51:53 / ajlilz

Apríl

Vá, ég er varla að trúa þessu. Það er strax kominn apríl. Ekkert smá hvað þessi önn er búin að vera fljót að líða. Dagarnir mínir síðustu eru búnir að vera ansi venjulegir bara, mamma og pabbi komu í heimsókn vikuna fyrir páska. Fórum til Stokkhólms einu sinni sem var mjög gaman, skemmtilegasta stokkhólms ferð sem ég hef farið í hingað til, eða aðalega vegna þess að núna nennti ég loksins að hreyfa á mér rassinn og fara í Gamla Staan sem ég hefði bara aldrei vitað að væri svona spennandi. Var reyndar í skólanum þennan dag þannig að fólkið fór á undan í einhverja siglingu og á söfn. Svo kom ég og ég græddi einn flottann jakka og bláan kjól. Heyrðu svo fórum við pabbi saman í gamla staan að skoða og vá hvað þetta var flott, gamla göngugatan sko. Líka alveg sjúklega flottar búðir, miklu meira spennandi heldur en á nýju göngugötunni. Svo voru svona þúsund geðveikt flott pínulítil fornaldarkaffihús. Ein búð sem ég fann með helling af byssum, hnífum, hasspípum, hálsmenum og öðru epic drasli ásamt svona norna dóti einhverju. Svo fóru þau heim á páskadag og vorum við þá komnar í frí og ég eyddi því mest í að passa bara og sofa.
Blabla svo er ég bara búin að vera eitthvað í skólanum og ræktinni. Er alveg að meikaða í ræktinni haha. Samt alveg æðislegt að vera byrjaður að nenna þessu. En vá hvað þetta var leiðinlegt og óspennandi blogg, en mér fannst ég bara vera neydd til þess að blogga smá. En ég ætla ekki að hafa þetta lengra svo þetta verði ekki alveg ólæsilegt.

bleeee,
Liljan : )

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 20:30:23 / ajlilz

Skullllllllllllzzzzzzzzzzhhhhhhhorrrrrzzzzzzz

TIL HAMMÓ MEÐ AMMÓ

 RJÓMAKÖKUJÓRTURLEÐURSPUNGSKLESSA!!!

ELSK ON JÚ MÆ LOVLÍ SKULLZORSÍDOOOOOOOOOOOOOOOOOODL!


18 ára woooooohooooooooooo



Einu sinni varstu rosa lítill í afmælisveislu hjá mér þegar ég var bara 4ra ára að borða grænann ís. Það er svona það sem ég man fyrst eftir þér.



[þegar ég googlaði grænn ís kom bara þessi mynd þannig að við látum það bara vera svoleiðis]


Svo eitt sinn bjóstu útí Danmörku og sendir mér líka þennann fína geisladisk í 7 ára afmælisgjöf, fyrsti geisladiskurinn minn. Og ekki nóg með það heldur á ég hann ennþá!



nákvæmlega þessi fínasti barnadiskur sem inniheldur uppáhalds lagið mitt - meistari jakob á DÖNSKU!!!



Svo varstu líka einu sinni 8 ára útí Noregi með mér og stalst hjólinu mínu og dast á því 



[fann þessa fínu mynd sem líktist þér rosalega]


Svo varstu allt í einu orðinn 14 ára vandræðaunglingur sem reykti og drakk! pssssssssss




<3 Svo áður en maður vissi af varstu komin með kærustu <3



[man ekkert hver kærastan þín var en þessi mynd kom undir kysserí, fannst þetta óeðlilega líkt þér líka]


Svo varstu orðinn enn stærri strákur og kominn með bílpróf!
og ennþá stærri strákur og fórst á Wacken í fyrsta sinn!
og ennþá stærri strákur og komst alldelis sjálfur á flugvöllinn að sækja liljuna sína
og ennþá stærri strákur að klifra útum gluggann eftir kl 12 og hitta liljuna og telmunar sínar :D

váá skúli orðinn stór strákur
en þar sem að ég á enga nýja mynd af þér og þú veist líklega hvernig þú lítur út í dag ætla ég að láta þetta næja!

til haminigju með afmælið lalílalílaaaaaaaa!


- lils í stærsta pilsi í heiminum!!!




» 9 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 21:23:21 / eydís

leeeti!

heh kannski orðið smáá langt síðan ég bloggaði seinast :S allavega þá er ég komin í hið langþráða páskafrí :P sem er samt kannski ekkert svo mikið páskafrí fyrir mig því ég er að vinna mest allt fríið : ) een það er samt ágætt því þá fæ ég heví mikið útborgað næst :P

Mér finnst alveg ótrúlega mikið vanta fleiri bílstæði við Fsu.. Það er bara enganveginn nóg af bílastæðum fyrir nánast alla krakka skólans og kennarana líka! Og það er eitt sem ég ÞOLI ekki, það er þegar fólk leggur í miðjunni í skóginum! um daginn þegar ég ætlaði heim úr skólanum þá var bíll búinn að leggja í miðjunni og hann var svo nálægt bílnum mínum að ég komst ekki í burtu! Það munaði svona 2 sentimetrum að ég hafi bakkað á bílinn þegar ég gerði heiðarlega tilraun til að komast heim! Ég var líka orðin svo ógeðslega pirruð! ég hefði kannski bara átt að dúndra á bílinn svo að manneskjan sem á hann myndi nú læra eitthvað af þessu! enda forljótur bíll! een ég er svo góðhjörtuð, og ég vildi heldur ekki gera elsku Kolbeini Krumpu það að beygla hann meira :P alveg nógu beyglaður þessi elska ;)

En jæja nóg af kvarti um bílastæðaskort við Fsu. Jeii um helgina eru páskarnir og ég er nokkuð viss um að mamma sé búin að kaupa páskaegg handa mér ;P eins gott að hún sé búin að því ;) Allavega þá er ég að fara með Guðna uppí sveit heim til hans um páskana :D það verður örugglega gaman bara ;)

Eníhú ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira núna ;)

Blee!

Eydís Harpa!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 02:52:10 / ajlilz

Smashing Pumpkins :D

Jæja nú er hægt að bæta þeim inná listann minn yfir bönd sem ég hef séð. Þau eru orðin svo mörg að ég er farin að gleyma O___o
Oh well ég ætla að segja hérna aðeins frá þessum frábæru tónleikum sem ég upplifði fyrir nokkrum klukkutímum síðan. =)
Einhvernveginn náðum við að fara á mis á lestarstöðinni í Uppsala ég, Elena og Johann þannig að við fórum öll í sitthvoru lagi í lestina án þess að vita neitt um hvar hinn var. Planið var að hittast á lestarstöðinni kl 4. En þar sem að lestin fór 9 mín yfir og við fundum ekki hvort annað fórum við öll í sitthvoru lagi í lestina en hittumst öll á lestarstöðinni i Stokkhólmi fyrir "tilviljun" hehe. Fórum svo á kaffihús í smá tíma og ég var svo spennt að ég gat ekki hætt að hlæja. Svo tókum við neðanj.lestina um 6 leitið og vorum komin svona korter yfir á tónleikasvæðið. Vorum með þeim lang fyrstu að koma, tónleikarnir byrjuðu svo kl hálf 8 og það var Moto Boy sem hitaði upp, hann tók kannski 4 lög og söng þau öll á háa c- inu. Svo leið alveg mega langur tími og þá kom Billy Corgan í silfurpilsinu sínu með föruneiti sín sem kallast saman Smashing Pumpkins. Úff þetta var algjörlega ólýsanlegt, aðeins of gaman! Þótt ég geti ekki sagt að ég hlusti of mikið á Smashing Pumpkins þekkti ég samt sem áður flest lögin, tók upp 3 í símann minn sem soundaði bara ansi vel meðað við að vera í sima. Svo voru tónleikarnir búnir svona rétt fyrir 11. Þvílíkt stress þá, því að við héldum að síðasta lestin til Uppsala færi rétt rúmlega 11 og við vorum komin í neðanj.lestina rúmlega 11. En svo þegar við komum á lestarstöðina fór önnur lest til Uppsala rúmlega 12. Phew. Svo komum við til Uppsala og það voru alveg 35 mín í strætóinn þannig að við löbbuðum alveg meeeega langt. Tókum svo strætóinn og fórum heim. Svo sit ég hér að blogga, gaman gaman.. Kannski ekkert voðalega spennandi blogg. En so it be.
Það er ekki oft sem að maður fer á Smashing Pumpkins tónleika.
Well það koma myndir bráðum frá tónleikunum, samt ekkert margar.
En núna er ég farin.

Bæ, Lils Pils!

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 00:06:49 / ajlilz

Blogg blogg!

Góða kvöldið!
Eða það er allavegana kvöld hjá mér eins og er.
Hef ákveðið að koma með smávegis færslu bara svona uppá gamanið. Líka til að drepa leiðindin! Eins og þið kannski sjáið eru kominn hellingur af nýjum myndum, líka búin að flokka þær aðeins. Stal reyndar flestum myndunum af naughtyz stelpunum. Jájá, það verður bara að hafa það, þær hafa nú oft tekið einhverjar frá mér. En allir vinirnir í skóginum eiga að vera dýr þannig að við getum alveg lánað hvor öðru.
Sportlovið er að fara ágætlega með mig, fæ að sofa mjög mikið en geri samt sem áður ekkert annað en að hanga hérna heima í tölvunni. En við erum svo að fara á snjóbretti á föstudaginn, áætlað var að fara í fyrramálið en þar sem að við föttuðum á síðustu stundu að Ronny er ennþá með snjóbuxurnar mínar í láni og þær eru í stokkhólmi þá höfum við ákveðið að fara á föstudaginn. Tæknilega séð á morgun semsagt.
Mig hlakkar ekkert smá mikið til, loksins að fara að gera eitthvað skemmtilegt og þá fær maður líka smá að hreyfa sig. Jájá, en svo er ég ekki enn komin með svar frá Elenu um Smashing Pumpkins tónleikana er svo að vooonast til að við komum. En peningaleysið er alveg að fara með okkur báðar þannig að það gæti verið að við missum af þessu, en common hver lætur það gerast? að missa af smashing pumpkins tónleikum. Ekki sjéns gott fólk! Allavegana ekki ég sko.
En úff ég er búin að komast að því að ég er bara með alltof reyktann heila til þess að geta kunnað meira en 2 tungumál. Ég er farin að hugsa á sænsku með breskum hreim og þýskuslettum inná milli. Ég kann ekki einu sinni Þýsku? Svo tala ég íslensku, en tala hana eins og 7 ára krakki, kann ekki að beita orðunum rétt og raða setningum stundum upp í algjörlega vitlausri röð. Ég held ég sé bara algjörlega að færast á þann hlut lífsins sem kallast málleysi, þið verðið sko að fara að hringja oftar í mig svo ég verði ekki mállaus. Ekki það að ég tali aldrei við meðleigjendur mína á íslensku heldur það að ég tala aldrei við þá um eins skemmtilega hluti og ég tala um við ykkur, eða ykkur hver? Vinsamlegast skiljið eftir skoðun til þess að ég veit hver þið eruð svo ég þurfi ekki að efa það sem ég segi.
Ég er orðin algjör væmnishæna. Gott orð! væmnishæna, einhvernveginn datt mér þetta orð fyrst í hug þegar ég hugsaði um daginn minn í dag. Ég veit ekki einiu sinni hvað það þýðir en það verður víst bara að hafa það.
Nú jæja, hér sit ég og væli og væli um einhvern orðaforða sem ég skil ekki einu sinni. Vá hvað verður öruglega erfitt að skilja þetta blogg. Ég þarf öruglega að kaupa mér orðabók bráðum. Svona orðabók með myndum, eða svona orðabók sem er tengd huganum. Svona ef ég nefni eitthvað orð þá lýsir hugur minn því fyrir mér. Vá hvað það væri alltof geggjað. Svo gæti hugur minn alltaf sagt mér alveg hvernig ég ætti að tala tungumál þótt ég kynni það ekki einu sinni. Váá það væri mega awesome, En ég væri samt bara eina manneskjan í heiminum með þetta.
Já margir eru draumarnir, einnig dreymir mér um að vera flottasta manneskja í heiminum með flottasta og yndislegasta kærasta í heiminum og búandi í flottasta húsi í heiminum og eiga flottasta hús í heiminum og eiga mestu peninga í heiminum og að áfengi, dóp og sígarettur færu engannveginn illa með mann og maður fengi bara ekki nóg af því og að manni myndi aldrei líða illa.

AFHVERJU RÆTAST DRAUMAR EKKI??

Jæja ég er farin.
Veriði sæl að sinni,
þangað til næst,
bless og bæ,
kær ástarkveðja,
Lilja Sigrún Sigmarsdóttir,
Lilja Sigrún,
Lilja,
Liljan,
Lils pils,
Lilsorsídoodl.
Hvað fílar þú best?
 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 22:43:54 / eydís

=O

whaat? =S hvað gerðist fyrir blog.central? =O allt í klessu =O þetta finnst mér ekkert alltof sniðugt =S
oh ég veit aldrei hvað ég á að blogga um. ég held alltaf að ég hafi svo mikið að segja en svo hef ég bara ekkert að segja =S heyy jáá það er Valentínusardagur í dag! til hammó allir! =D
eeen jáá.. lífið mitt þessa dagana hefur verið voða mikið eins bara, fara í skólann, vinna eða læra, fara á eyrabakka, læra meira, horfa á pressuna ooog fara alltof seint að sofa! =D Hey já, hefur einhver horft á pressuna? haha semsagt ef það er einhver annar en Lilja að lesa þetta því að hún býr nú auðvitað í svíþjóð og getur þess vega alveg örugglega ekki horft á íslenska stöð 2! =D Allavega þetta eru mega fínir þættir, var geðveikt spennt yfir þessu og gat ekki beðið eftir að sjá næsta þátt (H)
wah ég get ekki beðið eftir að Lils komi aftur heeeiiim! =D
Talvan mín er svo skrítin, hún er geðveikt hægvirk, alveg mega lengi að kveikja á sér og slökkva á sér, og ég fór með hana í viðgerð og þá kom í ljós að það var eitthvað að harða diskinum og ég semsagt fékk nýjan harðadisk, eeen talvan er bara ekkert betri eftir það =( er engan veginn sátt =/
en já ég hef ekkert meira að segja þannig að blee! =D

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.02.2008 23:02:42 / ajlilz

Suckingly suck it!

Enn eitt leiðindarbloggið.
Eins og þið hafið kannski tekið eftir er Eydís góðvinkona mín komin með mér í þessa síðu. Ástæðan er nú eiginlega bara sú að við höfum ansi oft reynt að búa til síðu saman en alltaf hefur það klúðrast á sama hátt; bloggum 1 blogg og gleymum síðunni svo. Eydís segir að henni langi svo í asnalega bloggsíðu með mér og viti menn, ég bíð henni í þetta fína blogg sem ég á hérna. Aðal vandamálið er nú bara nafnið á síðunni þar sem að það er öfugt nafnið mitt plús z. Eydís, þú verður bara z. Efast samt um að hún eigi eftir að blogga meira en ég, en jæja maður getur alltaf gert sér vonir ekki satt?

Ég er nýkomin með vinnu við að passa. Eða kannski ekki hægt að segja passa, meira bara sofa. 5 ára strákur sem heitir Egill og 11 ára stelpa sem heitir Rosmarie. Já og þau eru íslensk og búa í gamla Uppsala. Sæki strákinn í leikskólann um 4 leitið, elda kvöldmat, svæfi strákinn, horfi á sjónvarp, fer að sofa, vakna, fer með strákinn í leikskólann og tek svo strætó í skólann sjálf. Fæ 100 kr á tímann við að passa og samtals 300 sænskar við að sofa. Þannig það er ca 600 sænskar fyrir skiptið sem er mjög gott. Byrjaði í gær og er aftur að fara á morgun.

Heyrðu svo er Inga Hanna komin með nýja tölvu sem er mjög gott, loksins komin með tölvu hérna heima. Í næstu viku er svo enginn skóli, bara sportlov og Inga hanna fer til Rússlands í mánuð. Svo eftir mánuð koma mamma, pabbi og Smári í heimsókn. Gaman er að leika saman já, og þá fæ ég páskaegg. En þangað til ætla ég í megrun! Annars er önnur góð frétt, ég og Elena erum hugsanlega að fara á tónleika með Smashing Pumpkins 1.mars, kostar 375 Sek og er þetta í Stokkhólmi. Hún á ennþá eftir að checka hvort hún eigi nógann pening, hopefully. Vá hvað næsti mánuður verður skemmtilegur hjá mér, allavegana eitthvað að gera annað en hina mánuðina. En hver er sammála um að tíminn sé búinn að líða ooooooof hratt eftir jól? Ótrúlegt, mér finnst eins og ég hafi bara verið hér í 2 vikur.

Í dag var óvenjulega hlýtt úti, þvílík sól og læti sem er ágætt. En svo kom rosa rok í smá tíma, akkurat þann tímann sem ég var að labba heim úr skólanum sem var jú ekki sérlega gaman. En svo fór það um leið og ég kom heim. En já það gerðist soldið fyndið í dag, ég og Lili vorum að bíða eftir stærfræði og urðum vitni af alveg ógurlegum ástarleik samkynhneigðra bílaiðnaðarstráka í skólanum. Ekkert smá hvað þeir skömmuðust sín þegar þeir sáu okkur þarna hlæjandi á bekknum. Byrjuðu að láta eins og þeir höfðu bara verið að djóka eitthvað, en þar sem ég tek ekki gríni gott fólk þá stend ég enn á því að þeir hafi bara verið að æfa sig fyrir rúmið.

Já ég er byrjuð í megrun enn og aftur. Óska mér góðs gengis gott fólk, en núna ætla ég að hafa þetta aðeins meira serious. Ætla bara alveg að taka nammi og gos útúr dagskrá, ásamt fitandi mat. Júlíana sjálf vill alltaf hafa einn nammidag í viku en það virkar bara ekkert sem megrun fyrir mig, eða mér sjálfri finnst ekki nóg að léttast bara um 9 kíló á 4 mánuðum eins og fyrir jól, vil grennast aðeins meir. Úff það er spurning hvort maður fari kannski að sofa, er samt ekkert þreytt en vaknaði svo eldsnemma í morgun og er ekki búin að sofa mikið undanfarið þannig að ég held það sé betra svo ég verði ekki alveg vonlaus í að vakna í fyrramálið! Þá segjum við þetta gott í bili. Sjáumst vonandi hress og kát í næsta bloggi.

- Liljan : )

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2008 18:35:23 / eydís

ewóó!

hah! hæó =D jaahúú ég er komin með Lilju í síðuna hennar =D haha ég veit ekki hvað ég á að segja meira :'D mér leiðist =O ætti að vera að gera eitthvað íslensku verkefni en alltaf þegar ég byrja á því þá finn ég mér eitthvað annað að gera í tölvunni 8-) ég hef svosem ekkert mikið meira að segja :P er bara búin að vera í skólanum, vinna smá og svo hanga heima eða á eyrabakka hjá Guðna =D ég veit ekki hvað ég á að segja meira 8-) það er svo langt síðan ég hef bloggað, kann það ekki lengur =O eníhú ég nenni eiginlega ekki að segja meira núna =P ætla að farað setja inn myndir frá humó og einhverju öðru sniðugu =P blee (H)

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 09:39:11 / ajlilz

leidist blogg

Pirrandi hvad manni getur alltaf leidst mikid. Afhverju eiga ekki allir bara einn geeeeedveikt skemmtilegann ímyndadann vin sem ad enginn sér annar en madur sjálfur og enginn heyrir tala annar en madur sjálfur og enginn heyrir mann tala vid nema madur sjálfur. Svo er vinurinn alltaf med helling af skemmtilegu efni og áfengi med sér. Ohh thad yrdi adeins of geggjad. En jaeja thar sem ad lífid er ekki beint draumur tharf madur einhverntímann ad láta sér leidast. Samtals 24 tíma á sólahring gerist thad hjá mér. Eda naestum thví. Núna eru nákvaemlega 40 mínútur í ad staerdfraedi tíminn byrjar hjá mér, ég fékk ad velja hvort ég mundi sitja inni í tíma hjá samnemendum mínum á medan their eru í erfidri saensku eda gera ekki neitt eda fara á bókasafnid í tölvu. Getidi thrisvar hvad ég valdi?

Í gaer fór ég Júlíana og Njalli á sýningu í Livets ord, thad var um gydingabúdirnar og svoleidis, framhaldsskólanemendur sem léku. Ekkert smá hvad thetta var flott. Svo fór ég líka í bíó med júliönu á föstudaginn á mynd sem heitir Förtrollat, ég bara hef ekki hugmynd um hvad hún heitir á ensku. En hún var mega skemmtileg. En annars er gjörsamlega ekkert spennandi búid ad gerast í mínu lífi en samt sem ádur ákvad ég ad blogga enn eitt leidindarbloggid. Í gaer var ég mega dugleg, ég fór á hjólid hjá Ásdís og Njalla og hljóp í 25 mín. Svo fae ég thad líklegast heim til mín í dag. En vid erum búin ad panta mida á Wacken sem er awesome, ég, Skúli, Árdís, Klara, Ingi og einhver Jón? förum saman býst ég vid. Awesomenessessídoodl.

Skrítid hvad ég held alltaf ad ég aetli ad segja eitthvad spennandi en svo verdur thad bara aldrei neitt spennandi, thid getid ekki ímyndad ykkur hversu oft ég hef byrjad ad blogga og haetti svo bara thegar ég er búin med tvaer setningar thví ad thad skemmtilega sem ég aetladi ad skrifa tók ekki meira pláss en thad. Núna eru alveg komnar 3 efnisgreinar, ég ákvad nefnilega ad safna bara upp thangad til einhvern ákvedinn dag og thá kemur bara sprenging. Thad er eitt sem ég hef ad hlakka til í dag, ég og júlíana aetlum ad elda tortillas í kvöldmatinn, já krakkar, svona er thad thegar madur á sér ekkert líf thá hlakkar manni bara til thess ad fá kvöldmat. Svo er hinsvegar eitt sem mér kvídur soldid fyrir, er ad fara ad hitta einhverja skólahjúkku á eftir til thess ad svara einhverjum spurningum um Ísland, that will be interesting. Frekar vandró kannski.

Heyrdu loksins kom snjór í gaer. Reyndar bara rétt svo yfir allt, eins og alltaf reyndar. Svo í dag var allt ordid frosid og thid getid ekki ímyndad ykkur hvad var erfitt ad labba í skólann án thess ad detta. Hefdi verid tíbískt ég ad detta akkurat á stéttinni fyrir framan innganginn á G húsinu thar sem allir eru. En thad gerdist ekki, á vonandi ekki eftir ad gerast. *sjöníutrettánbankbankbank*. En ég hef annad ad segja ykkur (ykkur hverjum? láta vita láta vita). Ég er ordin mega bílhraedd, bara ef ég sest upp í bíl byrja ég strax ad panika og thad ekkert lítid. Ég treysti bara engum bílstjóra, sérstaklega ekki mér sjálfri. Er alltaf uppspennt og fae alveg sjúkar hardsperrur eftir hverja bílferd. Svona er erfitt ad heita Lilja stundum.

Úff. Thad eru alveg hundrad thrjátíu og eitthvad dagar í ad ég kem heim og thá mun ég koma alveg heim. Shibby. En fyrir thá sem eru ad spá í thví hversvegna ég heiti alltaf á msn í personal messageinu "142 dagar" er ástaedan sú ad ég get ekki breytt thví thar sem ad ég tharf alltaf ad vara á windows messanger í gegnum netid útaf tölvuleysi. Já, júlíönu talva og Ingu Hönnu talva cröshudu bádar fyrir stuttu. En í dag skilst mér faer Inga nýja tölvu sem ad vid getum hangid í eins og vid viljum (vonandi). En ég er komin med góda lausn á thví ad leidast, madur bloggar bara. Nú er tíminn búinn ad lída eins og ég veit ekki hvad og adeins 25 mínútur í tímann hjá mér. Lidnar 20 mínútur sídan ég byrjadi ad blogga á bara no-time. Nohh nohh. En thar sem ad ég hef gjörsamlega ekkert meira ad segja aetla ég ad enda thetta hérna med smá broskalli : ) Veridi heil og Sael.

- Lils Pils

 |                  |

|                   |

|                  |
|                                               |
|                                          |
|                                |
___________________
 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 15:30:16 / ajlilz

Suck it!

Ég er viðbjóðslega heimsk manneskja í dag.
 
Ohh, nei! Ég svaf yfir fucking skólann, fyrsta skóldaginn! DAMN IT!!!
 
Jólafríið var svo æðislegt að mig langar að endurtaka það þangað til ég dey, ég nenni nú ekki að segja frá því í smáatriðum en get eitthvað sagt frá því ef einhver hefur einhvern áhuga á að lesa það.
 
 
Fyrsta daginn komu Eydís, Skúli og Árdís að sækja mig á flugvöllinn, fluginu seinkaði um 1 og hálfann tíma og þetta er bara lengsta og leiðinlegasta flug sem ég hef einhverntímann farið í, var að deyja úr þreytu en gat ekki sofnað. Horfði á heila mynd og las svona hálfa bók en aldrei ætluðum við að fucking lenda.
Um kvöldið fór ég á fillerí heima hjá einhverjum gaur. Svo fór ég á rúntinn með DannaMaggogTelmu. Daginn eftir það fór ég á Andkristnihátíð í TÞM. Það var gaman og eftir það var smá partíleitarúntur með GauaAronogGuffa. Svo komu jólin og það var gaman, var lítið heima bara rúnta með Telmz. Ég fékk jólagjafir samt og mat og svoleiðis. Svo var alltaf gaman að rúntogreykjogdrekka með Telmz og strákunum sem gerðist hvern einasta dag í þessu fríi.
Svo fórum við Skullz í bæinn í heimsókn til Rixx og við rúntuðum á Selfoss, nei við rúntuðum bara hálfa leiðina því við lenntum í crazy bílveltu sem var meira crazy en veltubíllinn hefur nokkurntímann verið. Woohoo. Svo kom löggan og læti.
Ég og Klarz tognuðum eitthvað smávegis. No big deal.
Svo var maður bara áfram að rúntareykjogdrekka með Telmz og strákunum.
Því næst komu áramótin sem var voða gaman líka, góður matur og smávegis partístand eftir. Fyrst hjá Bonna siðan Smára og að lokum Fúsa. drama drama, fyndið drama, ég fara heim, leiðinlegt drama eftir það. Svo svaf ég lengi og fór í bæinn á Aktu Taktu með TelmzogGauogDannz. Svo var haldið áfram að rúntareykjogdrekka með Telmu og strákunum (maggzDannzogEyjz).
Svo fórum við í sumó (sumarbústað;) mega gaman. Telmz, Ég, og ég og ég og ég og ég, Danni, Maggi, Eyji, Gaui og Frikki.
Svo í fyrradag á mánudaginn fór ég í bæinn með Eyrúnz. Við fórum í matslag og hittum Inga og fórum svo heim. Þá hitti ég þorbjörgu.
 
Um kvöldið var eg og eg og eg og eg og eydís og skullz að rúnta. Svo fór Aids heim og ég og Skulls fórum að rúntareykjogdrekka með Telmz, Eyjz and Dannz. Svo fórum við Skullz heim til hans, eða fyrir utan heima hjá honum að hlustá Led Zeppelin og Aerosmith. Voða gaman já.
Svo fór ég heim í tölvuna þangað til ég og Pabbz lögðum af stað á flugvó.
Það var voða leiðó á flugvó.
Ég hata flugvó.
Ég hata flugvó.
Ég hata flugvó.
 Flugvó er stytting af flugvöllur.
Ég nota styttz yfir allt núna.
Ég er svo mikill hnakkz.
 Svo fór flugvélin í loftið og bara bæ Ísland. Voða voða leiðó.
Svo tók ég lest frá flugvó í Swe til Storvreta.
Þurftað labba með töskó mega mega langt og ég tók mér svona 3 sígópás.
Svo fór ég heim í tölvó.
 
Svo um kvöldó sofnaði ég kl 9 og vaknaði kl hálf 11 og gat ekki sofnað fyrr en 2. Og ég gerði ekkert í millitíðinni nema að deeeeeeeeeyja úr heimþrá. Það var mega mega leiðó.
Svo vaknaði ég í dag alltof seint og missti af skóla. Það var mega leiðó.
Sko, allt er alveg mega mega leiðó í Svíþjóð.
Ég vil bara fara heim!!!
Blessssó
Lils pils.
 
 
Vonandi hafiði gamó af leiðó bloggi. 
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 20:34:18 / ajlilz

2007

Langaði bara að gera svona eins og allir eru að gera.



Jæja þar sem að árið 2007 er komið á enda langar mig að vita,
Hver er uppáhalds minningin okkar saman?
Commenta, mig langar soldið að vita =) langar langar




- Lilspils langar langar langar

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.12.2007 15:31:27 / ajlilz

Lalalalalala lalalalalaaaa lalalalalala lalalalalaaa.

Hæhæ, enn eitt bloggið að skella hér á.
Ég er að koma heim eftir bara 13 daga. Það er orðið svo stutt að ég gjörsamlega get ekki beðið. Það verður mega awesome. Ætlar þú að hitta mig eða? En hér koma nokkrar ljóskumyndir af mér, ég og Inga Hanna fórum í smá svona myndaflipp um daginn, komst þá svo líka að því að Inga ætti myndavél. haha ekkert verið að segja mér frá því, það er kannski ágætt því annars væri ég öruglega alltaf með hana í láni. Enn dagarnir hjá mér þessa viku voru miklir sofa-yfir-sig dagar. Svo var ég í foreldraviðtali á fimmtudaginn og ég er víst komin með 74 skróp, ég vissi sko í þykjó ekki að ég ætti að hringja þegar ég var veik ;) En þá komst ég líka að því að ég get klárað skólann hér en þá þarf ég kannski að taka auka náttúrufræði- og sögutíma þar sem að ég skil auðvitað ekkert í því og fæ engar einkunnir.
En já í gær var eitthvað svona "stelpu-kvöld" heima hjá Ásdísi, reyndar var Njalli og Kristófer líka með en whaaateva hehe. Horfðum á Idol tjugohundrasju úrslitin, og ég var ekkert mjög sátt. Þær voru 2 eftir, Marie og Amanda. Amanda er gjörsamlega algjör snillingur, 18 ára og er bara algjörlega one of a kind. Svo kemur Marie sem er 30 ára eða eitthvað og er bara alveg eins og allar þessar tíbísku Celen Dion - Mariah Carey söngkonur sem eru bara allstaðar til. Vitiði, Marie vann, auðvitað. En samt var hún alveg eins góð söngkona sko.
En já eins og þið sjáið þá hef ég gjörsamlega ekkert að segja, er farin að tala um sænska Idolið haha O___o En þið verðið nú samt að commenta á þetta blogg fyrir mig svo ég verði sátt. En heyrðu já, ég og Júlíana fórum til Stokkhólms á Miðvikudaginn og ég keypti allar jólagjafirnar nema Árdísar, Þorbjargar og Júlíönu. Veit ekkert hvað ég á að gefa þeim, iss þetta er erfitt sko. Það var samt gaman í stokkhólmi þrátt fyrir að ég var gjörsamlega að drepast úr harðsperrum í hnjánum og lærunum, þannig að það var svona frekar erfitt að labba en það bjargaðist. En úff, það er bara ekkert meira sem ég get sagt ykkur : /
En jæja hvað segiði, er það ljóshærð eða dökkhærð?
[kannski ekki góð mynd í samanburði en þið hafið öll séð mig dökkhærða]
- Lils

» 4 hafa sagt sína skoðun

19.11.2007 16:12:33 / ajlilz

Blogg

 
Eydís og ég á góðum tímum með appelsínugult hár að láta á okkur flottustu neglur í geimi!
 
En jæja jæja. Ég ætlaði bara aðeins svona að láta vita af mér! Á fimmtudaginn var mega skemmtilegur skóladagur. Það var svona opið hús þannig að það eina sem við þurftum að gera var að hitta samspilshópinn okkar og svo vorum við bara að spila fyrir einhverja 10.bekkinga frá hálf 11 - 2. Mér var líka soldið mikið illt í puttunum. En það var samt soldið mikið misheppnað hjá okkur, ég og Pernilla vorum þær einu sem mættum í okkar hóp en svo kom Elena svona klukkutíma seinna. Bassi, Gítar og fiðla. Haha að spila einhver abba lög. En það var samt gaman :D Vorum í einu af kjallaraherbergjunum og á öllum þessum tíma komu samtals 3 hópar að horfa.
 
Svo á föstudaginn var bara venjulegur skóladagur. Fór svo með Juliu uppí Livets Ord á samkomu, hittum þar Linneu og fullt af fleiru fólki. Og einhvern geðveikt fríkaðann gaur sem var alveg mega mikið að tala við mig, gaf mér meira að segja svona knúsumiða haha. Svo eftir samkomu skutlaði pabbi Juliu mér heim og ég fór bara að sofa.
 
Laugardagurinn var líka ágætur svosem. Gerði ekki mikið, jú ég kláraði bókina! Svartur á leik. Klikkuð bók, mæli eindreigið með henni. Um kvöldið vorum svo ég og Ronny að spila á gítarinn og syngja :D Lærði meira að segja 2 lög á gítarinn, Solitude með Black Sabbath og Dirt on the grave með Black Label Society. Fucking klikkað maður! Vorum að spila alveg langt frammeftir en svo fór ég bara að sofa ef mig minnir rétt.  
 
Jæja svo fór sunnudagurinn í að hata sunnudaga! Ég gerði gjörsamlega ekki neitt. En svo fór ég bara í skólann á morgun og sit hér í tölvunni, er að fara á tónleika með Júlíönu, tökum strætó eftir 28 mínútur nákvæmlega. Og ég nenni enganveginn að bíða, ég er svöng og mér leiðist! Oh well well, ég ætla ekki að hafa þetta lengra. Lýk blogginu með hérna dásamlegri mynd af mér og Júlíönu á sama tíma og hin var tekin, en hver veit nema að ég láti nokkrar myndir úr afmæli Ingu Hönnu í næsta bloggi, jahh!
 
  
 
- Lils Pils!  

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  7  Alls: 21283
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1349 dögum
Kemur Lilja heim